Textílsögur – Stories in Textile
In Icelandic: Textílsögur – frásögn í textíl
- When
- Thursday 3 December
at 16:00–18:00 - Where
- Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41
The group exhibition Textílsögur at Spöngin, where 35 textile artists tell stories through textile, materials and craft.
Summary translated automatically from Icelandic.
Original text in Icelandic
Textílfélagið stendur fyrir samsýningunni Textílsögur í Borgarbókasafninu Spönginni. Á sýningunni segja 35 félagsmenn fjölbreyttar sögur í gegnum textíl, efni og handverk.
Verkin byggja meðal annars á minningum, reynslu, stöðum og ímyndun. Þau endurspegla fjölbreyttar aðferðir og nálganir innan textíllistar og textílhönnunar og sýna hvernig efni, form, litir og handverk geta orðið að frásögn.
Textílfélagið hefur starfað frá árinu 1974 og telur nú 118 félagsmenn. Félagar vinna á fjölbreyttan hátt að textílhönnun, myndlist eða hvoru tveggja.
Sýningin verður opnuð fimmtudaginn 3. desember kl. 16–18 og eru öll hjartanlega velkomin.
Sýningin stendur til laugardagsins 30. janúar 2027 og er opin á opnunartíma safnsins:
Mánudaga–fimmtudaga kl. 10–18, föstudaga 11-18 Laugardaga kl. 11–16
Nánari upplýsingar : Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Spönginni [email protected]
Þorgerður Hlöðversdóttir, formaður Textílfélagsins [email protected]
More at this venue
Source: reykjavik.is.


















