Grafarvogur Add Search
All events
Community & meetings

Puzzles Galore

In Icelandic: Púsl á alla kanta

When
Saturday 14 November
at 13:00–15:00
Where
Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41

Puzzles galore at Spöngin – a meetup for jigsaw fans of all levels, with a puzzle swap and the chance to try something new.

Summary translated automatically from Icelandic.

Original text in Icelandic

Að setja saman púsluspil er áhugamál sem flest stunda rólegheitum heima hjá sér, en samfélagið er ansi fjölbreytt. Sum kjósa að setja saman púsl með mörg þúsund bitum á meðan önnur láta sér nægja að púsla minni púsl. Með tilkomu hraðpúsls sem keppnisgreinar hefur flóran orðið enn fjölbreyttari.

Púsl á alla kanta er nú haldið í þriðja sinn. Sama hvernig púslari þú ert, þá er hér tækifæri til að hitta aðra púslara, prófa eitthvað nýtt og eignast ný púsl.

Á viðburðinum verður:

·        Skiptimarkaður þar sem hægt er að kaupa notuð púsl eða skipta.

·        Kynning á hraðpúsli.

·        Hægt verður að grípa í púsl eða púslskák.

·        Happdrætti í gangi með glæsilegum vinningum. Dregið í lok viðburðar.

·        Hringrásarborðið þar sem hægt er að taka og/eða skilja eftir púsl eins og hver vill. Restin fer í Fríbúðina Gerðubergi.

Þeim sem hafa áhuga á að vera með borð á skiptimarkaðnum er bent á að takmarkað pláss er í boði og seljendur / bíttarar þurfa að skrá sig fyrirfram, með því að senda tölvupóst á [email protected]. Greiða þarf 1000 krónur til að taka frá borð sem verða endurgreiddar við mætingu.

Skipuleggjendur viðburðarins eru Berglind S. Heiðarsdóttir, Heiða Sigurjónsdóttir og Svandís Sigurjónsdóttir áhugafólk um púsl.

Allir púslarar velkomnir, byrjendur sem lengra komnir!

Nánari upplýsingar veitir: Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur [email protected] | 411 6250

Open in Google Maps

More at this venue

Source: reykjavik.is.

Something wrong? Suggest a fix
Which category does this event belong in?
Anything else?