Jólasögustund fyrir fjölskylduna
- Hvenær
- Þriðjudagur 8. desember
kl. 16:30–17:30 - Hvar
- Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41
Verið velkomin á bókasafnið að hlusta á fallega og hjartnæma jólasögu fyrir alla fjölskylduna.
Lesin verður sagan Á ég að prjóna húfu handa þér? Efir Kate Klise og myndir eftir M. Sarah Klise.
Kanínumæðgurnar fá góða hugmynd rétt fyrir jól; þær ætla að prjóna húfur fyrir vini sína í jólagjafir því það á að snjóa svo mikið um jólin. Eftir upplesturinn er boðið upp á skemmtilegt föndur.
Sögustundirnar í Borgarbókasafninu Spönginni eru í Sjónarhóli, sýningarsal bókasafnsins. Öll eru hjartanlega velkomin!
Nánari upplýsingar veitir: Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur [email protected] | 411 6250
Meira á sama stað
Heimild: reykjavik.is.


















