Grafarvogur Bæta við Leita
Allir viðburðir
Samfélag & fundir

Hannyrðastund í Spönginni

Hvenær
Í dag
kl. 13:30–14:30
Hvar
Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41

Ertu með eitthvað á prjónunum? Ertu að hekla fallegt sjal eða sauma út púða?

Á fimmtudögum kl. 13:30-14:30 er hannyrðastund í Borgarbókasafninu Spönginni frá september fram í lok maí. Öll velkomin, byrjendur og lengra komin, í notalega stund í blágrænu sófunum á annarri hæð.

Við spjöllum um daginn og veginn, fáum okkur kaffi og sinnum handavinnunni í góðum félagsskap.

Við eigum líka mikið úrval af alls kyns bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í og grípa með sér heim.

Opna í Google Maps

Meira á sama stað

Heimild: reykjavik.is.

Eitthvað rangt? Leiðrétta
Í hvaða flokki á viðburðurinn heima?
Eitthvað annað?